Skúnaskrall er barnamenningarhátíð sem haldin var í fyrsta sinn víðs vegar á Norðurlandi vestra vorið 2022. Ýmis námskeið, vinnustofur og listviðburðir prýddu dagskrá hátíðarinnar. Áhersla var lögð á fjölbreytni í dagskrá og gott aðgengi. Meginreglan var að aðgangur væri ókeypis og veitti því öllum börnum og ungmennum á Norðurlandi vestra tækifæri til að upplifa og vinna að fjölbreytileika listsköpunar.
Verkefnið var eitt af áhersluverkefnum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra og var verkefnastjórn hátíðarinnar ráðin af SSNV, Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem einnig veittu fjármagni í verkefnið og héldu utan um bókhald. Að öðru leyti var verkefnið fjármagnað af styrkveitingum.
Skúnaskrall er þátttökuhátíð og ýtir því einnig undir og hvetur mannauð Norðurlands vestra til að stýra námskeiðum, viðburðum og smiðjum fyrir börn og ungmenni. Styrkir og stuðningur hefur verið veittur til þessa. Hátíðin er spennandi verkefni sem vonandi fær að stækka og dafna í framtíðinni og verða fastur liður í menningarstarfi barna á svæðinu.